26júní

núna blogga ég loksins er sko ekki að hafa tíma til að skrifa eitt né neitt... Allavegana það er mikið að gerast hjá okkur í sumar. Við brunum  upp í  sumarbústað  núna um helgina með  Berglindi og  Stínu. Svo í  enda Júlí förum við á ættarmót hjá mellurunum einhverstaðar fyrir norðan, fengum náttúrlega fellihýsi gefins frá foreldrum mínum svo við tökum glæsivilluna með okkur og ætlum okkur að stoppa á nokkrum vel völdum stöðum í leiðinni. Langar að kíkja á ísó en er ekki að nenna hel.... fjörðunum sé til... En við kíkjum á húsó til að hitta Sísí og co, förum svo til esk að hitta allt liðið þar svo verður brunað í bæinn, krökkunum hent í pössun og við skötuhjúin förum í brúðkaup hjá dóra og Siggu vinafólki okkar. Gengur ágætlega í nöglunum er að vísu búin að fara yfir allan vinalistan og vinnufélaga svo ég fékk leyfi frá kennaranum mínum að auglýsa mig á barnalandi. Hlakka ekkert svakalega til að fara að fá símhringingar frá einhverji kellingu útí bæ sem að vill koma heim til mín og fá neglur but say laví (veit ekkert hvernig þetta er skrifað) bið að heilsa í bili

kveðja
LINDA MJÖLL

26. júní 2008 klukkan 11:01
Linda Mjöll Helgadóttir
2 athugasemdir
19maí

Skólinn

Nú er mín búin að vera í skólanum í næstum 2mánuði og gengur allt mjög vel er að hugsa hvort að maður fari kannski í förðunarfræðinginn þegar að naglafræðingurinn er komin í hús. Allt gengur annars vel hérna heima. Alexander er byrjaður í aðlögun á leiksskóla og fannst honum æðislegt að hlaupa út um allt og vera uppá öllum leiktækjunum og svoleiðis þurfti að halda á honum þegar að klukkutíminn var búin því að hann neitaði að koma með mér heim öskraði sparkaði og beit voða gaman sko. Litli prins er byrjaður að standa með fram öllu og er orðin flottur í framan allur flekkóttur vegna marbletta en já ætla að setja inn mynd af Katrínu vinkonu setti neglur á hana á laugardagskvöldinu.



og svo mynd af skrautinu sem að lýsir í myrkri ógeðslega töff sko



bið að heilsa í bili

Linda
19. maí 2008 klukkan 17:53
Linda Mjöll Helgadóttir
2 athugasemdir
26mars

Skóli

Jæja þá er mín að fara að setjast á skólabekk hehehehe finnst ég vera hundgömul og vona að stelpurnar sem að ég verð með í bekk verði allar eldri en ég (I WISH) en fyrir þá sem að ekki vita það þá er ég að fara á eftir í Snyrtiakadamíuna og læra Naglasnyrtifræði jeyj hlakka ógó til hehehe strákarnir ætla að passa pabba sinn á meðan en ætla nú ekki að hafa þetta mikið lengra tata


ég og litli snúður í afslöppun á esk um páskana




26. mars 2008 klukkan 09:43
Linda Mjöll Helgadóttir
5 athugasemdir
16febrúar

stóri strákurinn

litli "stóri" strákurinn minn er orðin 2ára Gavuð hvað tíminn er fljótur að líða


Ein af seinustu bumbu myndunum



Komin í heimin og allir grátandi í kór



Litla rassgatið 1 árs



Og svona er kvikindið í dag

16. febrúar 2008 klukkan 00:49
Linda Mjöll Helgadóttir
1 athugasemd
07febrúar

Síđa Dagsins



kv.Linda
07. febrúar 2008 klukkan 22:16
Linda Mjöll Helgadóttir
2 athugasemdir
04febrúar

scrapiđ

hérna eru nokkrar síður sem ég er búin að gera:







04. febrúar 2008 klukkan 00:18
Linda Mjöll Helgadóttir
Engin athugasemd
15janúar

Áhugamáliđ

jæja krakkar er ég núna alveg að missa mig í nýja áhugamálinu mínu!! Ég er kannski ekki eitthvað svakalega góð en æfingin skapar meistarann en aðal atriðið er að IM HAVING SO MUCH FUN DOING IT!!! Ég fæ að fara út á kvöldin og hitta stelpur sem að eru akkúrat að missa sig í þessu líka og já verð nú bara að segja það að maður er hálf partin farin að lifa fyrir þessa fundi hehehe... anyways þetta heitir skrapp og flest allir vita hvað það er.. Mér finnst þetta allavegana geggjað og er búin að eyða fullt af peningum í þetta múhahahaha allavegana þá ætla ég að reyna að setja inn myndir en það er eitthvað að hel... myndunum hérna þær loadast ekki inn hjá mér... ALLAVEGANA

kvLinda
15. janúar 2008 klukkan 10:14
Linda Mjöll Helgadóttir
8 athugasemdir
05janúar

áriđ er á enda

þá er árið búið! Vill ég óska öllum þeim sem að ég hef ekki óskað ennþá gleðilegu nýju ári maður er orðin svo vanur því að óska sollis að ég skrapp í búð í dag og sagði gleðilega helgi við búðarkonuna sem að horfði náttúrlega á mig eins og hún héldi að ég væri í alvöru ljóshærð hehehe. Jólin hjá okkur voru mjög góð, við komum til tengdapabba akkúrat þegar að klukkurnar klingdu er það vegna þess að skyrturnar og kjóllinn minn hefðu farið í þvott og svo í nýja fína þurrkarann sem að við keyptum í gegnum barnaland og þegar að jólafötin voru búin að vera í þurrkaranum í 4 klukkutíma og komu samt út rök ákvað mín bara að drífa sig í að strauja allt heila klabbið svo við kæmumst nú úr húsi í tæka tíð, svo var brunað út í bíl með börnin og Kallinn ferjaði bílinn af pökkum og tók það bara korter því að strákarnir voru að fá allt oooofffff margar gjafir. ANYWAYS við fengum kalkún í matinn og var hann bara geggjað góður, eftir mat var farið að opna alla pakkana sem að tók ekki það langan tíma því að magga tengdó og Sigríður stjórnuðu þessu eins og herforingjar úr sófanum á meðan að Valdís hljóp með pakkana út um allt. Svo eftir allar pakka opnanirnar var farið í að borða eftirréttinn og fengum við ís með heimatilbúni karmellusósu. En vonandi áttu allir yndisleg jól
kv.Linda
05. janúar 2008 klukkan 21:42
Linda Mjöll Helgadóttir
4 athugasemdir
13desember

DEKUR

Svo við hjónin skelltum okkur á jólahlaðborðið með GÁ og Danhús 8des. Byrjaði dagurinn á því að ég þurfti að pakka í töskur fyrir allt liðið og velja í hverju ég OG MAÐURINN áttum að fara í því hann gat það ekki(manni líður stundum eins og maður eigi 3börn sko hehehe). Svo var brunað með Alexander til Berglindar og rænt bílnum hennar(hann er á nögglum og hún var á leiðinni út og þarf ekkert á honum að halda á meðan múhahahha), svo var ferðinni haldið til Möggu og Magga en þau voru að passa Sebastían(þetta eru svo miklir skæruliðar að við þorum ekki að hafa þá saman hehehe). Eftir það vorum við barnlaus og alls laus og var brunað á seinustu stundu heim aftur og náð í gallabuxur sem að maðurinn gleymdi að taka með sér og svo farið til Hveragerðis en við gistum þar á æðislegum stað sem að heitir Frost og Funi. Þetta eru litlir kofar eða svefnálmur semsagt gengið var inní forstofuna og á vinnstri hönd salernið svo beint áfram var risastórt rími sem að rúmið og svefnsófi út í horninu svo risastór gluggi og glerhurð sem að leiddi út á pall geðveikt kósý!! Þegar að við vorum búin að koma okkur fyrir þá settumst við í sófan og spjölluðum bara vorum bæði í hálfgerðu sjokki því það voru engin börn. Svo drifum við okkur í fötin og í samkomuhúsið þar sem að liði var að safnast saman og fá sér smá bubbly mín fékk sér eitt lítið glas og var komin á rassgatið neeeiii bara að djóka. Rútan mætti svo á staðin og ferðinni var haldið á eyrarbakka þar sem að við fengum fordrykk, dýrindis mat og eftirrétti og rauðvín. Eftir mat þá var var öllum hóað saman aftur í rútuna en það eru 2 heita pottir fyrir utan Frost og Funa og ætluðu flest allir þangað(og klukkan var orðin 23:30)en þegar að við komum svo þangað þá var bara svo drullukalt að flest allir fóru bara aftur í samkomuhúsið og drukkum þar til kl03.30 en við og fólkið í fyrirtækinu hans Sissa vorum seinust í rúmið rokk on hehehe og ég held að maður hafi verið vel kendur þegar að maður drullaðist loksins í rúmið, maður kann þetta greinilega ennþá bjóst nefnilega við því að fá mér einn sopa af bjór og drepast hef ekki fengið mér að drekka almennilega í næstum því 3ár anyways nenni þessu brjálæði ekki lengur á víst börn sem að maður þarf að sinna líka hehehe
kv Linda
13. desember 2007 klukkan 10:14
Linda Mjöll Helgadóttir
2 athugasemdir
30nóvember

Jólafílingur

Þá er jólafílingurinn komin hjá mér er búin að vera að skreyta smá í þessari vikur. Er byrjuð að búa til jólasokka á familíuna og sollis með nýju flottu saumavélinni sem að ég fékk í afmælisgjöf frá Ömmum og afa mínum og Möggu og Magga tengdó og er ég þeim innilega þakklát :O). Fór með Sissa í gær á opnunina á staðnum sem að hann er búin að vera að vinna í núna í næstum 5vikur greyjið,það er English pub. Ég verð nú bara að segja það að ég varð pínu lítið fyrir vonbrigðum því að Sissi var búin að segja að þeir væru að byggja upp old english pub svo mín náttúrulega bjóst við að koma inní viðarbull út um allt og læti eins og flest allir gömlu flottu pöbbarnir eru úti(allavegana flest allir sem að ég stundaði þegar að ég bjó úti)bjóst við að fá svona tilfiningu eins og að ég væri komin heim:O) en þeir ákváðu svo að breyta þessu plani á seinustu stundu og er þetta eins og nýju retro pubbarnir eru úti!(veit ekkert hvernig þeir líta út) Sissi sagði mér nú samt að þetta liti miklu betra út þegar að það væri ekki svona stappað af fólki. Annars hefði mér eflaust  litist betur á hann ef að ég hefði ekki verið með  svona væntingar á honum. Anywhos þá erum við skötuhjúin að fara næstu helgi á jólahlaðborð með Vinnunni hans Sissa og við munum víst gista þar og alles man ekki alveg hvar það verður en Maggi og Magga ætla að hafa Sebastían og Berglind verðu með Alexander.... Er að reyna að venja Sebastían á pela svo að þetta verði ekkert mál fyrir tengdó annars treysti ég þeim alveg fullkomlega fyrir gaurnum sko... Ég get alltaf treyst á þau anyways er að fara að baka jólasmákökur með Alexander dúdilú
kv. Linda
30. nóvember 2007 klukkan 14:38
Linda Mjöll Helgadóttir
4 athugasemdir

Ađalvalmynd

Prófíll

  • Nafn: Linda Mjöll Helgadóttir
  • Stađur: Hafnarfjörđur
  • Atvinna: Heimavinnandi húsmóđir eins og stendur
  • Hjúskaparstađa: Ég er trúlofuđ hinum yndislega manni Hr. Sigurjóni Magnússyni
  • Um mig: hmm ég er 22ára tveggja barna móđir sem ađ bý sem stendur í hafnarfirđinum and I am loving it. Er búin ađ vera međ barnsfađir mínum í nćstum 4 ár og tók ţađ mig smá tíma til ađ house train him but im almost there. En viđ höfum aldrei veriđ eins hamingjusöm. Fyrsta barniđ okkar kom í heiminn 16 feb.2006 og heitir hann Alexander Hrói en á ţví tímabili bjuggum viđ á eskifirđi og höfđum viđ ekkert betra ađ gera heldur en ađ... anyway ţar kemur skýringin á barni nr.2 sem ákvađ ađ koma í heimin 22 ágúst.2007 og heitir hann Sebastían Nói. En viđ erum í pássu frá fleiri barnseignum pjúff...

Auglýsing

Leit

Nýjast á HumorPix

Funny Images, This is why I don't ride public transportation Funny Images, Before/After Elections Funny Images, When helmets make no sense Funny Images, I actually like some of them but I found this funny! Funny Images, Damn right Funny Images, When you see it…

Könnun

Hvenćr gefumst viđ upp og flytjum austur

Atburđarteljari

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur